150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

framkvæmd aðgerða ríkisstjórnarinnar.

[15:36]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ekki ætla ég að deila við hæstv. forsætisráðherra um mikilvægi heilbrigðisforgangsins, enda var ég ekki beinlínis að spyrja um það. Ég var meira að spyrja hæstv. ráðherra um framtíðarsýnina í efnahagsmálum og þar fannst mér hæstv. forsætisráðherra skila nánast auðu, aðspurð um það hvort meginmarkmiðið væri ekki að reyna að draga úr atvinnuleysi. Jú, hún tók svo sem undir það, en allar tillögur sem ganga í þá veru eru felldar, tillögur sem ganga enn djarfar til verks en ríkisstjórnin hefur lagt til. Það er t.d. djarft að leggja til að af þeim sem ráðnir eru inn af atvinnuleysisbótum sé bara greitt 25% tryggingagjald. Það er djörf ákvörðun. Það er ekki verið að borga háar upphæðir í tryggingagjöld af þessu fólki (Forseti hringir.) ef það er heima hjá sér á atvinnuleysisbótum. Það var líka djörf tillaga sem kom frá stjórnarandstöðunni um að þeir stúdentar sem hafa unnið geti notið atvinnuleysisbóta. Það var allt kolfellt.

Er það það eina sem er alveg öruggt í stefnu þessarar ríkisstjórnar, að fella allar góðar tillögur frá stjórnarandstöðunni? Er það það eina sem er alveg víst?

(Forseti (SJS): Forseti verður að minna aðeins á tímamörk.)