lífeyrir almannatrygginga og bifreiðastyrkur.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Það er alveg hárrétt sem þingmaðurinn bendir á, greiðslur úr almannatryggingum vegna framfærslu, örorkulífeyrir og lífeyrir til eldri borgara, eru bundnar vísitölu og hækka ár hvert en þeir fjármunir sem renna til annarra þátta hafa ekki verið bundnir vísitölu neysluverðs eða almennum verðlagshækkunum. Það hefur verið föst krónutala í frumvarpi til fjárlaga ár hvert og hún hefur ekki verið vísitölutengd. Ég veit ekki hversu lengi þetta hefur verið svona en ég get upplýst þingmanninn um að við erum í samtali við hagsmunasamtök fatlaðs fólks um styrki til kaupa á bifreiðum. Það er aðeins breytingum háð, sumir styrkir hafa hækkað fyrir einhverju síðan en það er lengra síðan aðrir hafa hækkað, einkum á stærri bílum. Við erum að skoða þetta. Upplýsingar voru teknar saman fyrir mig í framhaldi af fundi sem ég átti með hagsmunasamtökum fatlaðs fólks til að ræða þetta og hvort ekki sé ástæða til að bregðast við með einhverjum hætti. Þetta er svarið við þeirri spurningu.
Varðandi það hvort það sé stefna ríkisstjórnarinnar að þessir liðir séu almennt ekki vísitölutengdir er það fjármagn sem við ákvörðum í fjárlögum ár hvert bundið ákveðinni krónutölu. Við höfum hins vegar ákveðið, og það er jákvætt, að það sem rennur inn í gegnum almannatryggingakerfið, m.a. í formi örorkulífeyris, er bundið vísitölu. Hins vegar þyrfti að taka umræðu um hvort jafnframt væri skynsamlegt að binda aðra þætti vísitölu. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það að svo stöddu. Þess vegna erum við með sértækum hætti að skoða bifreiðastyrkina sem þingmaðurinn nefndi í fyrirspurn sinni.