lífeyrir almannatrygginga og bifreiðastyrkur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið en samt svarar þetta ekki því vegna þess að við vitum nú þegar að fullt af bótum og styrkjum, eins og lyfjastyrkir, rekstur bifreiða og annað, hækkar ekki neitt, þar af leiðandi lækka þeir. Hækkun í krónutölum er ekki sett inn á hverju ári sem er gífurlega ósanngjarnt. Ég er búinn að sjá dæmi frá 2009. Þetta er búið að vera í ríkisstjórn eftir ríkisstjórn. Þið horfið á þetta eins og þetta sé náttúrulögmál. Þetta er það ekki. Þarna er verið að klekkja á fólki. Það er auðvitað ömurlegt, það er ekki til neitt ömurlegra. Þetta eru eldri borgarar og öryrkjar sem eru að leysa út lyfin sín út og þurfa að borga á raðgreiðslum eða jafnvel taka smálán. Þetta getur ekki gengið upp og það er okkur til háborinnar skammar að við skulum láta þetta viðgangast, ekki bara í ár heldur undanfarin ár.