stuðningur við sveitarfélög.
Herra forseti. Sveitarfélögin hafa ekki farið varhluta af heimsfaraldri Covid-19 frekar en aðrir í samfélaginu. Það er ljóst að þau eru misvel í stakk búin til að takast á við þetta áfall sem þar að auki bitnar mishart á þeim. Mig langar til að benda sérstaklega á stöðu þeirra fjölmörgu námsmanna sem hvorki fá störf í sumar né eiga rétt á atvinnuleysisbótum, einnig þá einstaklinga sem hafa verið í málamyndaverktöku og eiga því ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Það er því viðbúið að ásókn í fjárhagsaðstoð sveitarfélaga snaraukist. Margir uppfylla ekki skilyrði fyrir önnur úrræði og geta því ekki annað en leitað á náðir sveitarfélaganna. Of margir passa ekki í kassann.
Fjárhags- og fjárfestingaráætlanir margra sveitarfélaga eru því í uppnámi og ekki víst að þau geti sinnt nauðsynlegri grunnþjónustu, tryggt framfærslu íbúa sinna, hvað þá lagst í miklar framkvæmdir til að styðja við atvinnustig og efnahagsumsvif í nærumhverfinu. Sem dæmi var atvinnuleysi í apríl um 28% á Suðurnesjum. Það er búist við að atvinnuleysi fari upp í 50% í Vík í Mýrdal og að ástandið verði litlu skárra í Skaftárhreppi. Sveitarstjórinn í Bláskógabyggð hefur lýst grafalvarlegri stöðu þar og svipuð staða er uppi víða á Suðurlandi. Atvinnuleysi mældist 27% í apríl á Höfn í Hornafirði sem tekur á sig hrun ferðamannaþjónustu ofan á loðnubrest og lélegt ástand á humri. Skútustaðahreppur er í vandræðum og svona mætti fara hringinn í kringum landið.
Hæstv. sveitarstjórnarráðherra hlýtur að finna til ábyrgðar, bæði gagnvart bókhaldi sveitarfélaga en ekki síður íbúum þeirra sem lenda óhjákvæmilega í framfærsluvanda. Mig langar því að spyrja hann: Hvernig hyggst hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra styrkja og styðja sveitarfélögin til að mæta þessu áfalli?