150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

stuðningur við sveitarfélög.

[15:29]
Horfa

Álfheiður Eymarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fyrir svörin. Það er gott og ég veit að þessi samtöl eru í gangi og þessi greiningarvinna er í gangi. En ég fékk kannski ekki svar við spurningunni um stuðnings- og fyrirhugaðar aðgerðir, verða þær sértækar? Mér heyrðist það á ráðherra. Hvort þetta verði þá sértækar aðgerðir í þágu einstakra sveitarfélaga sem virkilega þurfa þess með eða hvort þetta verði almennar aðgerðir fyrir sveitarfélögin öll í landinu. Ég veit að námsmenn hafa gríðarlegar áhyggjur, þau störf sem þegar hefur verið úthlutað til námsmanna um allt land í gegnum sveitarfélögin eru ekki næg og hef ég áhyggjur af því vegna þess að fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er mjög naum. Ég held að framfærsluvanda íbúa á þeim svæðum sé kannski ekki nægilegt að laga með haustinu heldur þurfi það að koma til strax.