stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Herra forseti. Þar sem hæstv. ráðherra virðist ekki alveg átta sig á því hvað ég er að spyrja um vil ég nefna annað dæmi. Nokkur fjöldi íslenskra ríkisborgara hefur á undanförnum árum haft skattalega heimilisfesti erlendis, einkum í London vegna sérstakra skattareglna þar um tekjur frá öðrum löndum. Grunnur tekjuöflunar þeirra er oft eignarhald á íslenskum félögum. Meðal þeirra eru þeir sem talið er að hafi flutt eignir úr landi í aðdraganda hrunsins og eins er talið að einhverjir þeirra hafi eignast hlut í íslenskum félögum með nýtingu fjárfestingarleiðar Seðlabanka Íslands. Það kom einnig fram í Namibíu- og Kýpurmáli Samherja að fé úr þeirri félagaflækju var með þeirri leið notað til að mynda eignarhald í íslenskum félögum. Er það rétt að félög þessara aðila geti verið örugg um að fá styrk úr ríkissjóði samkvæmt þessu frumvarpi?