stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Herra forseti. Það ber að fagna því að þessi frumvörp sem við erum að ræða í dag hafi litið dagsins ljós. Þau eru að mörgu leyti flókin og ég ætla ekki að fara langt inn í þau á þessum stutta tíma hér en mig langaði til að spyrja hæstv. fjármálaráðherra varðandi birtingu upplýsinga. Ég tek eftir því að í frumvarpinu núna er sérstök grein um það að heimilt sé að birta upplýsingar um þá sem njóta stuðnings ríkisins með þessum hætti.
Mig langar til að spyrja í fyrsta lagi: Af hverju er valin sú leið að birta einungis nöfn en ekki fjárhæðir og láta um það gilda almenn ákvæði upplýsingalaga? Er ekki réttast að stjórnvöld hafi frumkvæði að því að upplýsa þetta að fullu? Og loks, vegna þess að það er ákveðið að setja þetta með beinum hætti inn í lögin og reyndar frumvarp félagsmálaráðherra líka, (Forseti hringir.) hvort það sé ekki rétt að taka af öll tvímæli varðandi lokunarstyrki, stuðningslán og brúarlán með sama hætti. Við viljum hafa allt uppi á borðum, ekki satt?