stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Herra forseti. Jú, guð minn almáttugur, það er einmitt hlutverk okkar hér og okkur hefur tekist það ágætlega að einhverju marki. Þó hefur mér fundist stjórnarliðar býsna lítið trúir sínum fyrri stjórnmálaskoðunum og stefnu þegar þeir hafa lagst á sveif með hægri öflunum og tek það fram að aðeins ein breytingartillaga frá stjórnarandstöðunni hefur verið samþykkt. Við höfum greitt atkvæði með öllum tillögum ríkisstjórnarinnar vegna þess að þó að þær séu ekki allar góðar þá eru þær betri en ekkert. Þær eru góðar en ég segi: Þær eru ekki nógu góðar.
En ég vil grípa á lofti orðalag sem hv. þingmaður sagði áðan, „í því ástandi sem nú ríkir“. Í því ástandi sem nú ríkir hefði ríkisstjórnin auðvitað átt að nýta sér framrétta hönd stjórnarandstöðunnar og kalla okkur að borðinu við undirbúning lagafrumvarpa sem hér eru svo lögð fram, eins og hefur verið tíðkað á þjóðþingum í nokkrum löndum í kringum okkur. Það hefði a.m.k. minnkað tafir á þeirri vinnu sem unnin hefur verið og hefði örugglega líka skilað sér í því að frumvörpin hefðu orðið betri. Ég er næstum því handviss um það. Það sem ég á svo við er að í kjölfarið núna með seinni hlutabótaleiðinni er farið að taka inn skilyrði sem ekki var vilji fyrir í nefndunum, m.a. að setja þak á laun forstjóra og annað sem var ábyggilega nefnt á nefndarfundum. Það er hins vegar ekki gengið nógu langt. En jú, þingið skiptir miklu máli en það hefði þurft að vera meiri þátttakandi í þessu verkefni, sem voru bara sjálf frumvarpsdrögin.