150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.

811. mál
[17:54]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Þá er hér enn ein vangaveltan, sem á kannski betur við það frumvarp sem við ræðum akkúrat núna. Ég hef verið að hugsa um fyrirtæki sem nýtir sér þetta úrræði en sér svo seinna meir ekki fram á að geta ráðið starfsfólkið aftur til sín og fer í þrot. Þá kemur að því að selja eignir og annað. Ég gæti ímyndað mér að hjá flestum fyrirtækjum færi það að einhverju leyti upp í að greiða skuldir. Ég velti fyrir mér hvort ekki væri eðlilegt að ríkið væri þá kröfuhafi í þrotabú fyrirtækisins.

Ég er ekki búinn að lúslesa frumvarpið, hv. þingmaður leiðréttir mig ef tekið er á því þar, ég gat ekki séð það, en fyrir vinnuna er fram undan í nefndinni velti ég fyrir mér hvort þetta væri eitthvað sem væri þess virði að skoða. Það væri þá hægt að setja einhver skilyrði um að það væri mögulega minnsti forgangur, en að ríkissjóður hefði einhvern kröfurétt í þrotabú fyrirtækisins ef það hefur nýtt sér þetta úrræði.