stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur spurninguna. Þingmaðurinn spyr hvort það séu vonbrigði að ekki sé tekið á því að fyrirtæki séu í skattaskjólum. Ég vil nú meina að verið sé að bregðast við því eins og hægt er. Þrátt fyrir allt er ekki ólöglegt á Íslandi að eiga fjármuni erlendis. Það eina sem er ólöglegt í því, og þingmaðurinn veit það jafn vel og ég, er þegar fyrirtæki eða einstaklingar gefa ekki upp tekjur. Það höfum við svo sem rætt áður, ég og þingmaðurinn, þ.e. skattalega heimilisfesti.
Eins og þingmaðurinn hefur rakið er sjálfsagt hægt að sjá fyrir sér eða ímynda sér leiðir fyrir fyrirtæki til að komast fram hjá þessum úrræðum og sækja sér einhvern stuðning úr ríkissjóði. En það þurfa þá að vera fyrirtæki sem eru með einhverja starfsemi á Íslandi. Starfsemi þeirra þarf að hafa dregist saman um 75% og þau þurfa þá að hafa uppfyllt öll þau skilyrði sem eru þarna tekin fram. Það er kannski rétt að minna á að bæði ríkisskattstjóri og skattrannsóknarstjóri hafa bent hv. efnahags- og viðskiptanefnd á að það sé kannski fræðilegur möguleiki á að fyrirtæki geti notfært sér þetta, en hins vegar hafa báðir þessir aðilar bent á að þeir sjái ekki að mikil líkindi séu til þess að það verði hægt vegna þess hversu þröng skilyrðin eru.