150. löggjafarþing — 108. fundur, 25. maí 2020.
breyting á starfsáætlun.
Forseti vill tilkynna breytingu á starfsáætlun. Forsætisnefnd ákvað á fundi sínum fyrr í dag að gera þá breytingu á starfsáætlun að þriðjudagurinn 26. maí og miðvikudagurinn 27. maí verði nefndadagar og að þingfundir verði haldnir fimmtudag og föstudag 28. og 29. maí.