150. löggjafarþing — 127. fundur, 25. júní 2020.
Orkusjóður.
639. mál
Forseti. Mig langaði til að koma hingað upp og bæta aðeins við. Talandi um að fá fundarboð með fimm mínútna fyrirvara, kannski af því að forseti er hér í salnum, langaði mig sérstaklega minnast á að ég fékk með þriggja mínútna fyrirvara fundarboð með forseta í dag. Þar af leiðandi gat ég ekki mætt á fundinn af því að ég var bara ekki í húsi. Mér þætti vænt um að við fengjum lengri fyrirvara þegar við þurfum að vera mætt einhvers staðar. Það væri gott.