150. löggjafarþing — 130. fundur,  30. júní 2020.

breyting á ýmsum lögum á sviði landbúnaðar og matvæla vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu.

714. mál
[01:24]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Hér er verið að leggja til löngu tímabæra breytingu, þ.e. að leggja niður verðlagsnefnd búvara. Hún er í engu samræmi við neytendur, frjálsa samkeppni eða framleiðendur sjálfa. Við í Viðreisn leggjum til þessa breytingu, að verðlagsnefnd búvara verði eðlilega lögð niður.