150. löggjafarþing — 130. fundur, 30. júní 2020.
ávana- og fíkniefni.
23. mál
Herra forseti. Ég vil taka undir með fyrrverandi þingmanni Samfylkingarinnar, Valgerði Bjarnadóttur, með leyfi forseta:
„Við eigum að huga að því að hætta að hundelta fólk sem er beinlínis veikt og snúa okkur að því að hjálpa þeim sem verst eru farnir til að geta lifað sem skástu lífi í þeim aðstæðum sem þeir eru í.“
Samfylkingin styður heils hugar þetta mikilvæga og tímabæra mál.