ávana- og fíkniefni.
Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að hverfa af braut refsinga og leggja áherslu á stuðning, forvarnir og meðferð. Á fundum velferðarnefndar kom fram að ráðuneyti heilbrigðismála vinnur að gerð frumvarps um málið þar sem farið verður í víðtækt samráð og ég treysti því að hæstv. heilbrigðisráðherra leggi slíkt frumvarp fram á næsta þingi. Á fundum nefndarinnar kom fram hjá gestum að málið væri ekki tilbúið til samþykktar. Engin reynsla er komin á neyslurýmin sem eru eðlilegt og mikilvægt fyrsta skref. Ég ítreka að við munum halda áfram að vinna í samræmi við stjórnarsáttmálann og draga úr refsingum vegna neyslu og efla meðferðarúrræði.
Ég greiði ekki atkvæði.