150. löggjafarþing — 130. fundur,  30. júní 2020.

ávana- og fíkniefni.

23. mál
[01:50]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég segi að sjálfsögðu já. Málið er mjög einfalt; að hætta refsingum. Þetta er ekkert voða flókið. Það er ekkert flókið við að fá umsagnir frá aðilum sem allir kvarta hér undan að ekki hafi verið leitað umsagnar hjá. Það geta allir sent inn umsagnir. Það er búið að fara margoft í það ferli gagnvart öllum þeim aðilum sem kvartað er yfir að hafi ekki haft tækifæri til að koma að málinu. Þeir hafa það víst. Vandamálið sem ekki er tekið á hér er að þeir sem gagnrýna þetta frumvarp geta einfaldlega ekki nefnt eitt efnislegt atriði í málinu sem er gallað, ekki eitt. Vísað er í einhver óljós ekki-samráðsmál sem hafa samt verið rædd í gegnum öll þessi ár.

Nefnið fyrir mig eitt dæmi, efnislegt dæmi, í frumvarpinu og breytingartillögunum (Forseti hringir.) sem er vandamál. Komið með tillögu að breytingum á því og klárum þetta. Það er svo einfalt að hætta refsingum. Rosalega einfalt. (Forseti hringir.) Það er ekki hægt að klúðra þessu.