151. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2020.

sköpun nýrra starfa.

[11:11]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég get auðvitað ekkert sagt til um það hvað hv. þingmaður kýs að segja hér og hann má segja það sem hann vill, ég er bara hjartanlega ósammála honum. Ég hlýt að halda staðreyndum til haga eins og til að mynda þeirri að engin önnur ríkisstjórn hefur eflt geðheilbrigðismál með sama hætti og sú sem nú situr. Það hefur verið gert með markvissum hætti allt frá upphafi því að við lítum ekki á það sem tímabundið verkefni heldur erum við núna vegna ástandsins að bæta enn frekar í það sem þegar hafði verið ákveðið. Ég get því ekki tekið undir það sem hv. þingmaður segir þar sem hann lætur eins og ekkert sé að gerast í þeim efnum.

Hv. þingmaður hefur áhyggjur af atvinnustiginu sem ég hef svo sannarlega líka, því að ég held að viðvarandi atvinnuleysi sé eitt það mesta böl sem nokkurt samfélag getur búið við. Því furða ég mig á viðbrögðum Pírata þegar ríkisstjórnin kynnti aðgerðir sínar til að styðja við íslenskt atvinnulíf á dögunum, m.a. skattaívilnanir til grænna fjárfestinga, styrki til þeirra rekstraraðila sem tæpast hafa staðið og þá nefni ég að sjálfsögðu aðila í ferðaþjónustu en líka aðila í skapandi greinum og öðrum. Ég nefni tímabundna lækkun tryggingagjalds. Og jú, ég heyrði viðbragð þingflokks Pírata. Þetta var náttúrlega bara til þess að gera eitthvað sérstakt fyrir Samtök atvinnulífsins.

Heldur hv. þingmaður virkilega að það eigi ekki að styðja við íslenskt atvinnulíf á þeim tímum sem við lifum núna með aukningu í nýsköpun, með því að koma til móts við þá sem verst standa, með því að hjálpa fólkinu í landinu og koma fyrirtækjunum í gegnum þennan skafl? Ég hlýt að spyrja að því miðað við viðbrögð þingflokks Pírata þannig að ég sé ekki eiginlega ekki að hér standi steinn yfir steini.