151. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2020.

störf þingsins.

[10:42]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Við höldum nú þingstörfum áfram við óvenjulegar og að sumu leyti erfiðar aðstæður. Við glímum nú við bylgju smita vegna kórónuveirunnar sem hefur auðvitað áhrif, bæði úti í samfélaginu almennt og eins hér innan dyra.

Við þessar aðstæður veltir maður fyrir sér: Hvert er hlutverk þingsins? Í fyrsta lagi er auðvitað mikilvægt að þingið haldi, eftir því sem kostur er, eðlilegri starfsemi uppi, eðlilegri lýðræðislegri umræðu og taki til umræðu og afgreiðslu þau mál sem brýnt er að það sinni á þessum tímum. Forgangsmálin í umræðunum hljóta að taka mið af ástandinu.

Fyrir utan nauðsynleg árviss verkefni eins og fjárlög og þau mál sem þeim tengjast þurfum við í þinginu að taka til umræðu mál sem tengjast viðbrögðum stjórnvalda við ástandinu. Við þurfum að ræða hér innan dyra sóttvarnaráðstafanir, hvernig þær eru útfærðar og annað þess háttar. Við þurfum bæði að fara yfir það sem gert hefur verið og hvað gera þarf á næstunni í þeim efnum. Við fáum væntanlega einhver tækifæri til þess á næstunni. Síðan þurfum við að setja umræður um efnahags- og atvinnumálin í forgang hjá okkur því að þrátt fyrir að heilsufarsvandinn sé auðvitað mikill verður efnahagslegi þátturinn sennilega sá sem mun fylgja okkur lengur, viðbrögð á efnahagslegum grundvelli og hvernig við ætlum að endurreisa efnahagslífið í landinu eftir þetta mikla áfall sem þarf að leita mjög langt aftur í tímann til að finna samjöfnuð við.