151. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[17:39]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég held að einfaldast sé að svara spurningu hv. þingmanns svona: Ef opnuð verður herstöð á Íslandi mun það ekki fara fram hjá hv. þingmanni frekar en neinum öðrum Íslendingi. Það gerist ekki í skjóli nætur og ef menn tækju slíka ákvörðun, sem að sjálfsögðu hefur ekki verið gert og reyndar ekki verið rætt, myndi það taka mjög langan tíma. Sú aukna viðvera sem hv. þingmaður vísar til kemur ekki til af engu. Það er ekki þannig að menn í Atlantshafsbandalaginu hafi ekkert annað við fjármuni að gera en að eyða þeim í þessa hluti. Það er bara ekki þannig. Það er ástæða fyrir því að það var miklu minna um þetta. Og það er ástæða fyrir því að síðar jókst það. Og við vitum alveg hver hún er. Aukin viðvera Rússa á þessu svæði hefur kallað á aukna viðveru af hálfu Atlantshafsbandalagsins og við erum þátttakendur í Atlantshafsbandalaginu. Varnir Íslands byggjast á veru í Atlantshafsbandalaginu og tvíhliða varnarsamningnum við Bandaríkin. Síðan erum við sömuleiðis í öryggissamstarfi við Norðurlandaþjóðirnar sem hefur aukist mjög mikið. Þetta kemur ekki til af góðu heldur út af því ástandi sem við búum við. Við lítum svo oft á þessi mál sem hefðbundin öryggis- og varnarmál en við höfum rætt það aðeins fyrr í dag (Forseti hringir.) að ógnirnar eru líka miklu fleiri og við þurfum að taka þær alvarlega.