151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[11:39]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni að með auknum fjármunum ættum við að geta stytt málsmeðferðartímann, þann tíma sem fólk bíður í óvissu eftir að fá svar. Málsmeðferðartíminn hefur auðvitað styst í fjölmörgum málum ef ekki öllum á undanförnum árum, ef við horfum nokkur ár aftur í tímann. Við sjáum gríðarlegar breytingar á málaflokknum í heild hvort sem horft er á þá fjármuni sem fara í hann eða þann fjölda umsækjenda sem hingað leitar.

Það er ekki rétt hjá hv. þingmanni að gerðar hafi verið miklar breytingar á lögunum. Við erum að horfa á lagaumhverfi sem var sett hér í þverpólitískri sátt. Að uppistöðu til eru það þau lög sem við fylgjum í dag og reynsla hefur komið á þau. Við erum auðvitað líka að bera okkur saman við önnur lönd. Hvar stöndum við öðruvísi að hlutunum? Að hvaða leyti eru lögin okkar ekki í samræmi við regluverk nágrannalanda okkar, t.d. annars staðar á Norðurlöndum? Og hvernig getum við svarað fólki fyrr sem almennt fær neikvæða niðurstöðu? Það er þess vegna sem málið er á þingmálaskrá til breytingar á ýmsum atriðum, ekki bara í alþjóðlega verndarkerfinu heldur einnig í dvalarleyfiskerfinu o.fl., til þess einmitt að reyna að hraða málsmeðferðinni í þeim málum sem almennt fá neikvæða niðurstöðu. Það frumvarp hefur verið áfram í vinnslu eftir að það var lagt síðast fram og er í vinnslu í ráðuneytinu.

Eftir að reynslan er komin á varðandi fjármunina færðum við alþjóðlega verndarliðinn út fyrir til að hægt væri að fjölga í þeim stöðum til þess sérstaklega að einblína á þessa löngu lista og af hverju fólk bíður svona lengi. Þá er þetta ekki lengur einungis undir Útlendingastofnun og kærunefndinni og ég held að með því áttum við okkur betur á umfangi málanna. (Forseti hringir.) Við viljum auðvitað öll gera vel en að sama skapi felst í því mannúð að svara fólki fyrr um öryggi þess hér á landi.