151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:06]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður vísar í lækkun fjárframlaga til Persónuverndar. Um var að ræða tímabundið verkefni sem féll niður á milli ára, um uppbyggingu á tæknibúnaði, sem eðlilega þarf ekki að kaupa á hverju ári. Síðan kemur þarna almenn hagræðingarkrafa eins og annars staðar, svo því sé haldið til haga.

Varðandi stöðuna í útlendingamálunum tek ég undir með hv. þingmanni að það þarf að líta til fleiri aðila og ég hef nefnt það. Við höfum verið að ræða um atvinnuleyfi sem hér þarf að skoða. Þau falla undir félagsmálaráðherra og eru því ekki á fjármálaáætlun dómsmálaráðherra eða umfjöllun þar um.

En ég held að það sé nauðsynlegt að við skoðum að einstaklingar eigi auðveldara með að koma hingað og starfa, að við skoðum atvinnuleyfin fyrir einstaklinga utan Evrópu og hvort þar sé ekki rými til að gera betur og gera breytingar á. Það tel ég og hef haldið því til haga og mun gera það áfram þó að það sé ekki á málasviði mínu. Þess vegna er ekki sérstök umfjöllun um slíka stefnubreytingu á málasviði dómsmálaráðherra í fjármálaáætluninni.

Að lokum fjallar hv. þingmaður um sjálfstæða, innlenda mannréttindastofnun, sem tilmæli eru um að koma á fót hér. Slíkt þarfnast fjármagns og það er alveg ljóst á þessum fjárlögum að við erum að reyna að gera betur fyrir sama fé og þurfum að gera það í þessum málum sem öðrum. Það eru því ekki áform um að koma slíku á fót á þessu ári.