fjármálaáætlun 2021--2025.
Hæstv. forseti. Ef ég kem aðeins inn á spurninguna um náttúruvernd og landvörsluna þá hefur orðið mikið tekjufall í sértekjum hjá Þingvallaþjóðgarði sérstaklega og Vatnajökulsþjóðgarði. Því höfum við reynt að mæta á þessu ári með því að færa til fjármagn eins og hægt hefur verið. Nú er verið að skoða það með þessum stofnunum hvort ekki þurfi að samræma betur þjónustuna sem þarf að veita við þann fjölda sem er í vinnu á hverjum tíma. Það breytir því ekki að við höfum aukið fjárframlög til landvörslu um yfir 2 milljarða þegar við teljum saman allt tímabil núgildandi fjármálaáætlunar. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli og ég tek undir það með hv. þingmanni.
Hv. þingmaður kemur líka inn á það sem snýr að aðgerðaáætluninni og hvort þessi fjármálaáætlun sé í fullu samræmi við hana. Við reynum á hverjum tíma að hafa fjármálaáætlun í fullu samræmi við þær áætlanir sem eru í gangi í loftslagsmálum sem og öðrum málum og þetta er allt tengt saman. Ég vonast náttúrlega til þess að við getum nýtt þá fjármuni sem við erum að fá aukalega inn í loftslagsmálin með sem skilvirkustum hætti og þar er áhersla á orkuskipti, þar er áhersla á kolefnisbindingu.
Þegar kemur að nýskráningum bifreiða og því að Noregur sé á undan okkur þá vil ég mjög gjarnan ná Norðmönnum, svo það sé sagt hér. Þau byrjuðu hins vegar langt á undan okkur af sínum mikla krafti, sem við erum þó komin í núna og við erum þegar búin að ná undraverðum árangri að mínu mati á þessu kjörtímabili.
Hvað varðar tilskipunina sem hv. þingmaður nefnir þá veit ég ekki betur en að hún sé á borði atvinnuvegaráðuneytisins en við getum rætt það betur, jafnvel hér á eftir.