fjármálaáætlun 2021--2025.
Forseti. Já, markmiðin eru ekki brotin niður á hvert og eitt einasta ár. Ég gæti alveg skilið að þau væru á tveggja, þriggja ára fresti eða eitthvað svoleiðis, en a.m.k. einu sinni á tímabili fjármálaáætlunar væri kannski lágmark. Við erum með markmið upp á 40% við lok tímabilsins, fyrir 2030. Það er það sem er merkt í reitinn sem fer undir árið 2025 í áætluninni, sem er mjög áhugavert. Í aðgerðaáætlun stjórnvalda er fullt af óútfærðum aðgerðum sem kannski er spáð fyrir um að nái að dekka upp það sem vantar upp á eða þennan helming sem vantar upp á. Það væri áhugavert að sjá fyrst það er fullyrt að því sé spáð að þær aðgerðir nái þeim árangri, fá að sjá það nánar útfært eða rökstutt í stefnu stjórnvalda að það sé raunin. Við erum að tala um fjárheimildir, almannafé sem við ætlum að leggja í aðgerðir til að ná þessum markmiðum. Það þarf að útskýra mjög vel af hverju við erum að ná þessum markmiðum vel og af hverju þetta er fjármagnið sem þarf til þess að ná þeim markmiðum.
Nú talaði hæstv. umhverfisráðherra um ástandið í dag, kórónuveiruna o.s.frv. Það er einmitt áhugavert loftslagsspor sem tengist dýrarækt, sýklalyfjanotkun og fjölónæmum bakteríum og ýmsu slíku. Það umhverfi sem við erum í með fjöldaframleiðslu dýra og með dýramörkuðum er ákveðin gróðrarstía fyrir sjúkdóma og faraldra sem höfum verið að glíma við á undanförnum árum. Þá velti ég fyrir mér hvort ráðherra myndi sýna þingsályktunartillögu Pírata um kjötrækt aðeins meiri athygli.