151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:51]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir umræðuna. Ég tek undir með henni um mikilvægi þess að við séum núna, ég leyfi mér að segja að taka okkur loksins á þegar kemur að ofanflóðavörnum og hlakka mikið til að við getum ráðist í fleiri verkefni. Eins og sjá má í fjármálaáætluninni er gert ráð fyrir að 28 verkefnum verði lokið árið 2021 en 35 árið 2025 og öllum 47 á þá að vera lokið árið 2030. Við erum með í vinnslu reglugerð sem mun þá taka á þessum markmiðum, eða því nýja markmiði, því að við erum að flýta þessu í rauninni um 20–25 ár, sem er alveg gríðarlega mikilvægt miðað við hver fjárframlögin voru. Í þeirri reglugerð munu þessi markmið koma fram, við erum kannski að vinna þetta svolítið upp þannig að árið 2021 eru ekki eins mörg að koma inn en svo koma fleiri og fleiri eftir því sem dregur á tímabilið.

Síðan spurði hv. þingmaður líka út í það sem snýr að fráveitumálum. Núna er verið að vinna að því í ráðuneytinu að gefa út reglugerð um með hvaða hætti sveitarfélögin geta sótt um þessa styrki, um hjálp ríkisins við fráveitumál. En við erum ekki komin með nákvæmar áætlanir um það hvernig þetta allt saman passar saman við þær áætlanir sem sveitarfélögin eru með, en þó hafa þær fjárveitingar sem við höfum verið að miða við tekið mið af því eins og hægt er á þessari stundu. Ég á því von á að alla vega á þessu og næsta ári og þarnæsta ári séum við á góðum stað með það.