fjármálaáætlun 2021--2025.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir umræðuna. Hv. þingmaður kemur inn á orkuskipti eins og við höfum verið að ræða mikið hér í dag og eitt af því sem hann nefnir er vísitöluuppfærsla á gjöldum í samhengi við umræðu um að hraða orkuskiptum. Við höfum náttúrlega ráðist í að hækka kolefnisgjaldið eins og við vitum um 50% árið 2018, ef ég man rétt, og svo 10% hin árin tvö á eftir hvort um sig. Ég tek bara undir það með þingmanninum að ég held að þetta sé ein af mikilvægu leiðunum okkar til að geta flýtt orkuskiptum enn frekar. Við erum síðan með allar þessar ívilnanir sem hér var komið inn á og ég hef rætt við fleiri hv. þingmenn í dag og þær skipta miklu máli.
Það skiptir kannski mestu máli að við erum farin að sjá árangur af því sem hefur verið hrint af stað, þar með talið að við sjáum náttúrlega að miklu fleiri eru farnir nýta sem ferðamáta eins og reiðhjól, rafreiðhjól og hlaupaskutlur. Við sjáum miklu fleiri nýskráningar á umhverfisvænni bílum sem eru um 50% eins og staðan er núna, á þessum vistvænu bílum, ef við tökum hreinorkubílana algjörlega út fyrir er hlutfallið lægra, þannig að við erum virkilega farin að ná árangri þar.
Ég er vissulega fullmeðvitaður um að Evrópuþingið samþykkti 60% markmið sem hér var lýst af þingmanninum en það á þó eftir að samþykkja það í aðildarríkjunum. Við skulum bara vona að það gerist.