fjármálaáætlun 2021--2025.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Tillögurnar fela í raun í sér að framlög til byggingarrannsókna verði aukin frá því sem nú er. Í samvinnu okkar félags- og barnamálaráðherra er áformað að setja á fót samkeppnissjóð um byggingar- og mannvirkjarannsóknir. Sjóðurinn verður fjármagnaður sameiginlega af ráðuneytunum. Áherslur sjóðsins munu einkum snúa að samfélagslegum áskorunum í byggingariðnaði, svo sem rakaskemmdum á mannvirkjum og aðgerðum til lækkunar kolefnisspors, samanber það sem hv. þingmaður fór yfir. Umsýsla sjóðsins verður hjá Tækniþróunarsjóði og sérstakt fagráð skipað til að fara yfir umsóknir til að tryggja faglegt mat óháðra aðila á þeim umsóknum sem berast. Með stofnun slíks sjóðs er leitast við að opna opinbert styrkjaumhverfi fyrir fleiri aðila úr háskólasamfélaginu og atvinnulífinu og stuðla að auknu samstarfi við erlenda rannsóknaraðila. Það er mikið að gerast á þessu sviði og landamærin verða óljósari í þessu.
Við gerum okkur grein fyrir því að samfara þessum breytingum er mikilvægt að tryggja samfellu hluta þeirra rannsókna sem nú standa yfir, eins og þingmaðurinn kom inn á, og hafa mikilvægt samfélagslegt gildi. Við erum í samráði við forsvarsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar að greina hvaða verkefni það nákvæmlega eru sem mikilvægt er að haldi áfram í gegnum tímabil breytinga og við erum tilbúin til að grípa inn í ef þörf er á.
Rb-blöðin um tækniþróun og áskoranir í byggingariðnaði verða áfram gefin út. Hjá Nýsköpunarmiðstöð hefur verið unnið að fræðslu og gagnasöfnun um mannvirkjagerð með útgáfu þessara blaða þar sem birtur er fróðleikur um málefni sem snerta byggingariðnaðinn og fjallað um niðurstöður rannsókna á sviðinu. Þessi starfsemi, ásamt þeim starfsmönnum sem henni sinna, mun flytjast til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þar gefst líka tækifæri til aukinna samlegðaráhrifa með þeirri starfsemi sem þar er fyrir. Þannig næst bæði fram öflugri söfnun gagna og öflugri miðlun upplýsinga á sviðinu.
Það má nefna líka að Byggingavettvangi, sem er samráðsvettvangur hagaðila í bygginga- og mannvirkjagerð, hefur verið falið að móta langtímaáætlun um fyrirkomulag rannsókna og þróunar í byggingariðnaði. Stefna þau að því að skila tillögum um það fyrir áramót, í samvinnu við atvinnulífið og hagaðila, að prófanir á byggingarvörum verði framkvæmdar í faggiltu umhverfi í náinni framtíð í samræmi við alþjóðlegar gæðakröfur í byggingariðnaðinum.(Forseti hringir.) Faggiltir aðilar þurfa að uppfylla ýmis starfsskilyrði og gæðakröfur, svo sem að vera óháður aðili á markaði (Forseti hringir.) og þessi þróun er í samræmi við það sem er að gerast á öðrum sviðum í atvinnulífinu.