151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[14:52]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Hjá efnis-, líf- og orkutæknisviði hefur verið aðstaða fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki í hátækni og ýmis alþjóðleg samstarfsverkefni, studd t.d. af rammaáætlun Evrópusambandsins, eiga sér samastað hjá svokölluðu ELO gegnum aðgang að tækjabúnaði. Þessi starfsemi mun halda áfram í breyttu rekstrarformi þar sem enn meiri áhersla verður lögð á samstarf við háskólasamfélagið á landsvísu. Hugsunin er að stofna félagið Nýsköpunargarðar um rekstur tækni- og rannsóknaseturs sem tekur við hluta af verkefnum og skuldbindingum ELO ásamt hluta af rannsókna- og þróunarstarfsemi Rannsóknastofu byggingariðnaðarins. Félagið verður óhagnaðardrifið einkahlutafélag að fullu í eigu ríkisins þar sem ríkið leggur fram hluta af tækjabúnaði Nýsköpunarmiðstöðvar sem stofnframlag. Þarna er verið að tryggja að félagið geti sótt um í þessa sjóði sem er að sjálfsögðu algert lykilatriði. Með stjórn félagsins munu fara fulltrúar háskólasamfélagsins og ráðuneytisins og lögð er áhersla á að félagið geti þjónað bæði sjálfstæðum frumkvöðlum og rannsóknastarfsemi allra háskóla á landinu. Ráðuneytið mun leggja félaginu til árlegt framlag í gegnum þjónustusamning. Lagður verður grunnur að því að fjármögnun rannsóknarverkefna sem nú eru hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, þar á meðal verkefni sem eru studd af rannsóknasjóðum Evrópusambandsins, geti flust á Nýsköpunargarða og lögð er sérstök áhersla á að félagið muni áfram geta sótt um í sjóði Evrópusambandsins. Félagið verður í fyrstu staðsett í núverandi húsnæði Nýsköpunarmiðstöðvar í Keldnaholti en markmiðið er að flytja starfsemina í Vatnsmýrina innan tveggja ára til að tryggja betur samlegð og samstarf við háskólasamfélagið. Þessi áform eru í samræmi við áætlanir stærstu háskólanna og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu þekkingarþorps í Vatnsmýrinni. Ég hef lagt á það áherslu að þessi aðstaða verði galopin fyrir nemendur alls staðar að af landinu, úr öðrum háskólum og að samstarfsvettvangur háskólanna geti skipað þarna í stjórn þannig að tryggt sé að allir hafi rödd við borðið, ekki bara þessir tveir skólar, Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Ísland sem eru staðsettir þarna. En það er rökrétt staðsetning að vera með þetta þarna. Hvernig það nákvæmlega teiknast upp er enn þá í skoðun. Við vitum að skólarnir hafa báðir áhuga á þessu þannig að við þurfum einfaldlega finna (Forseti hringir.) gagnsæja og góða leið til að tryggja að verkefnið vaxi og dafni (Forseti hringir.) eftir tvö ár í Keldnaholti.