barnalög.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir seigluna að leggja þetta frumvarp aftur fram, enda er þetta gríðarlega mikilvægt réttlætismál fyrir börn og foreldra. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í tvennt. Annars vegar um ákvæði um brottfall samnings í b-lið 6. gr., sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Ef foreldri telur forsendur skiptrar búsetu barns vera brostnar getur það snúið sér til sýslumanns sem staðfestir brottfall samnings.“
Mér þykir þetta auka óþarflega á valdaójafnvægi milli foreldra af því að með þessu er í raun verið að heimila að foreldri geti gert þetta nánast án fyrirvara. Sáttameðferð er ekki lögbundin í þessum anga heldur er það í raun valkvætt, ef sýslumaður metur sem svo að það sé tilraunarinnar virði. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvers vegna ekki er sett inn skýrt ákvæði um að ef foreldri telur að skipt búseta gangi ekki þá eigi að fara fram einhvers konar sáttameðferð.
Ég verð að geyma seinni spurninguna þar til á eftir.