151. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2020.

Þingsköp Alþingis.

80. mál
[14:18]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér er talað um skyldur þingflokksformanna til að sinna og framfylgja þessum lögum og ég velti aðeins fyrir mér afleiðingunum af því. Við erum hér með sjálfstæða flokka, sjálfstætt umboð á þingi, og hver um sig skipar yfirleitt einn þingmann í hverja nefnd. Sumir flokkar skipa fleiri og þetta ætti kannski frekar við þá flokka sem skipa fleiri þingmenn í hverja nefnd fyrir sig. En ef niðurstöður sjálfstæðrar ákvörðunar hvers þingflokks fyrir sig verður ákveðið kynjahlutfall í einni nefnd, hver getur sagt við einhvern flokk: Þú berð ábyrgð á því að laga þetta hlutfall, en ekki þú?