Þingsköp Alþingis.
Herra forseti. Í fyrsta lagi vildi ég leiðrétta það ef hv. þingmaður upplifir það þannig að ég leggist gegn 1. og 2. gr. frumvarpsins. Ég geri það ekki. Ég vakti einmitt athygli á því að þessar greinar fela í sér einhvers konar leiðbeiningu, einhvers konar vísireglu, sem verður ekki hægt að framfylgja afdráttarlaust. Það er auðvitað í samræmi við það sem praktíserað hefur verið eða framkvæmt hér af hálfu þingflokksformanna þegar þeir hafa sest niður og reynt að koma á einhverju heildarsamkomulagi um skipan í nefndir.
Hins vegar varðandi almennu spurninguna um kynjakvóta þá lýsti ég, og lýsi enn, yfir efasemdum um kynjakvóta almennt og eins og hv. þingmaður mun fylgjast með þá mun ég ekki koma breytingartillögu við jafnréttislögin að þessu leyti en ég hef efasemdir um þetta. (Forseti hringir.) Ég tel að jafnrétti náist betur með samtali, með þróun, (Forseti hringir.) með framkvæmdinni frekar en afdráttarlausum (Forseti hringir.) lagabókstaf að þessu leyti.