151. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2020.

leigubifreiðaakstur.

10. mál
[18:59]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (andsvar):

Ég þakka ráðherra svarið. Í 9. gr. eru ákvæði um gjaldmæla og verðskrá. Það er ekki hægt að skilja það öðruvísi en svo að löggiltir gjaldmælar skuli vera í öllum leigubifreiðum sem seldar eru á leigu. Það eru að vísu undantekningar, þegar seld er þjónusta með fyrir fram umsömdu upphafi og endi. Um hvað er að ræða þar og hverjar eru þessar undantekningar? Eru þær nógu skýrar? Þarna skildi nefnilega leiðir með sjónarmiðum farveitnanna og hinnar hefðbundnu þjónustu þar sem farveiturnar eru ekki endilega með gjaldmæla í bílum sínum, eftir því sem ég fæ best skilið. Undanþágurnar frá gjaldmæli eru einhverjar í lögunum. Hverjar eru þær þá? Er það varðandi limmósínurnar? Er það einhvers konar hópakstur? Þetta þarf að vera skýrt því að um þetta er tekist. Farveiturnar telja að þetta muni ekki að verða aðgengilegt fyrir þjónustu þeirra ef menn halda gjaldmælaskyldunni til streitu, eftir því sem ég kemst næst og skildist á gestum okkar á nefndafundum í umhverfis- og samgöngunefnd. Ef ráðherra myndi vilja segja nokkur orð um það.