151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

þingsköp Alþingis.

8. mál
[14:06]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Eins og kom fram í umræðunni hér í gær þá skil ég þetta sjónarmið vel hjá hv. þm. Andrési Inga Jónssyni og breytingartillöguna. Ég styð það samt ekki vegna þess að þetta er spurning um það hvort við getum tekið þátt á nefndarfundum Alþingis sem eru að jafnaði lokaðir. Píratar vilja að þeir séu að jafnaði opnir og að við getum sinnt starfi okkar jafnvel þótt við séum heima eða komumst ekki á fund. Þetta er skref í þá átt að við getum það jafnvel af heilsufarsástæðum. Ef breytingartillagan er samþykkt þá þýðir það að ekki verður mögulegt að taka þátt í nefndarfundum heiman frá sér þó að fólki fyndist það betra, t.d. vegna fótbrots, bakverkja eða vegna þess að fólk er bara örlítið slappt. Það er það sem verið er að leggja til hérna að sé mögulegt. Það er mikilvægt að það sé mögulegt því að annars gætum við misst af fundum sem við gætum annars sinnt og misst af því að taka þátt í atkvæðagreiðslu eða fá upplýsingar. Ég legg til að að jafnaði verið fastafundir Alþingis opnir eins og við Píratar höfum ítrekað gert. Það á líka að stíga skrefið til fulls. Það á bara að hafa þessa fundi þannig að þingmenn geti sótt þá með fullum réttindum á fjarfundi, þannig að þeir geti sinnt þeim lögbundnu skyldum sínum að vinna vel og upplýst að málum.