aðstoð við atvinnulífið og hina tekjulægstu.
Forseti. „Það er verið að mylja undir þá sem eiga“, sagði forseti ASÍ í Kastljósi um daginn, með leyfi forseta. Þar vísaði Drífa Snædal m.a. í fyrirhugaða hækkun á frítekjumarki fjármagnstekjuskatts sem mun færa fjármagnseigendum 150.000 kr. aukalega í ráðstöfunartekjur á mánuði. Aðgerðin mun fela í sér að tekjuhæsta fólkið mun komast hjá því að borga 770 millj. kr. í samneysluna sem maður hefði haldið að flokkur hæstv. forsætisráðherra, sem kennir sig við félagshyggju, hefði viljað nýta með öðrum hætti. Samtímis stærir ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sig af því að ætla að hækka ráðstöfunartekjur atvinnulausra í stórkostlegri atvinnukreppu um heilar 17.000 kr. á mánuði. Þetta gerir ríkisstjórnin loksins eftir viðstöðulausa baráttu verkalýðshreyfingarinnar og stjórnarandstöðunnar í fleiri mánuði, allt frá upphafi þeirra efnahagsþrenginga sem nú verða sífellt alvarlegri. Þetta er samt sama ríkisstjórnin og þurfti ekki nema einn dag til þess að finna 25 milljarða kr. í vasanum til að koma til móts við frekjukast Samtaka atvinnulífsins um daginn. Eins og hendi væri veifað var boðað til blaðamannafundar við Ráðherrabústaðinn þar sem hæstv. forsætisráðherra muldi frekar undir fyrirtæki og fjármagn í landinu.
Hæstv. ráðherra hefur sagt að við séum öll í sama báti í þessum ólgusjó sem nú ríður yfir íslenskt efnahagslíf, en dæmin sanna einfaldlega hið gagnstæða. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Hvers vegna er hún að mylja undir þá ríku? Hvers vegna er hún, eins og aðalhagfræðingur Kviku banka benti á á dögunum, að deila peningum almennings til þeirra sem þurfa þá ekki þegar þúsundir eru atvinnulaus og Landspítalinn býr við aðhaldskröfu? Hvaða sjónarmið liggja þar að baki?