breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ágætisandsvar, vel fram sett eins og hans er von og vísa. Ég ætla ekki að flytja neinar tröllasögur í þessu andsvari hvað þennan málaflokk varðar. Vissulega áttum við okkur öll á því í þessum þingsal, hvar í flokki sem við stöndum, að hitastig á jörðinni er að hækka og jöklar bráðna og þetta hefur áhrif. Við erum alls ekkert að afneita því í Miðflokknum, síður en svo. Við höfum hins vegar lagt áherslu á að þær aðgerðir sem er verið að ráðast í innan lands, og þá er ég að tala um hjá okkur á Íslandi, skili árangri, að það verði að vera ákveðin skynsemi í því sem við erum að gera. Ef við ætlum að skattleggja okkur í gegnum þennan vanda þá verður sú skattheimta að bera árangur, hv. þingmaður, og það er það sem ég hef verið að leggja áherslu á í málflutningi mínum um kolefnisgjaldið. Það er ekki hægt að sýna fram á þann árangur sem menn hafa sumir hverjir verið að halda fram að sé til staðar. Það hefur umhverfisráðherra staðfest. Ég hef verið að vitna í skýrslu sem segir að fara þurfi mjög vandlega yfir þennan skatt, það þurfi að rökstyðja hann miklu betur. Ég beiti skynsemi á þennan málaflokk hvað það varðar. En við í Miðflokknum erum alls ekki að afneita því að hér séu loftslagsbreytingar, síður en svo, og vandinn er vissulega alvarlegur. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni. Þetta snýst bara um raunsæis- og skynsemisstefnu, að við séum að gera hluti sem bera árangur. Og af því að nefnd var landsbyggðin og að þetta væri skattur á landsbyggðina og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson vill ekki viðurkenna það þá bendi ég á að kolefnisgjaldið (Forseti hringir.) hefur þau áhrif að vöruflutningar eru dýrari. Landsbyggðin er mjög háð þeim, svo dæmi sé tekið.