tollasamningur Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur.
Virðulegur forseti. Færa má rök fyrir því að stundum hafi ákveðnir hv. þingmenn gengið langt í fyrirspurnum og skýrslubeiðnum. Hér er ekki um slíkt að ræða. Ég vil nota tækifærið og þakka þeim hv. þingmönnum sem standa að baki þessari skýrslubeiðni. Hér er hvorki um meira né minna að ræða en munaðarlausasta alþjóðasamning í Íslandssögunni. Ég vona að þegar skýrslan komi fram muni hún, og það er markmiðið, draga fram kosti og galla við framkvæmdina, aðdraganda og hverjir stóðu að þessum samningi og hverjir bera ábyrgð á honum. Ég vona það, virðulegi forseti, og er sannfærður um að skýrslan geti orðið góður, málefnalegur grunnur fyrir umræðu um þessi mikilvægu mál.
(Forseti (SJS): Það er gott að heyra hvað ráðherra er ánægður með skýrslubeiðnina.)