breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Herra forseti. Við í Samfylkingunni munum ekki greiða þessu frumvarpi atkvæði okkar. Hins vegar munum við taka jákvæða afstöðu til þeirra breytingartillagna, bæði frá meiri hlutanum og minni hlutanum, sem við teljum vera til bóta. Þar get ég nefnt sérstaklega breytingar á lögum um tekjufallsstyrki, sem eru sannarlega til bóta og koma frá meiri hlutanum. Síðan vil ég einnig benda á tillögu Samfylkingarinnar sem gengur út á það að hækka frítekjumark launatekna fyrir öryrkja, sem staðið hefur óbreytt frá árinu 2010 og hv. stjórnarliðar vilja framlengja og hafa óbreytt ellefta árið í röð.