151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[14:09]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Tillaga þessi gengur út á það að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra verði falið að endurskoða kolefnisskattinn sem hefur hækkað mikið í tíð þessarar ríkisstjórnar, í ljósi skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem kom út í júní. Sú skýrsla hefur því miður ekki fengið nógu mikla athygli en helstu niðurstöður hennar eru þær að skatturinn bitni á efnalitlu fólki og hafi neikvæð áhrif á kjör þess og neyslu. Það þarf að rökstyðja betur hvers vegna skatturinn er lagður á. Hagfræðistofnun segir að skatturinn þurfi að vera mjög hár til að virka og að landsframleiðsla og atvinna minnki eftir að kolefnisskatturinn er lagður á. Það er því alveg ljóst, herra forseti, að skýrslan er áfellisdómur yfir kolefnisskattastefnu ríkisstjórnarinnar og staðfestir það sem Miðflokkurinn hefur alltaf sagt um þann skatt. Það er ekki forsvaranlegt að leggja skatta á almenning með þessum hætti þegar árangurinn er enginn og þeir bitna verst á tekjulágu fólki og íbúum á landsbyggðinni.