151. löggjafarþing — 31. fundur, 3. des. 2020.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
5. mál
Herra forseti. Loftslagsváin er alvöruvá. Það þarf að berjast gegn henni með öllum tiltækum ráðum. Einn liður í því er að beita skattkerfinu, þar á meðal kolefnisgjaldi. Þess vegna leggur Viðreisn til að sú vegferð verði hafin að hækka þessi gjöld og leggur til að í stað 2,5% hækkunar að þessu sinni verði gjaldið hækkað um 5%. Út á það gengur þessi tillaga.