151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

mannvirki.

17. mál
[14:30]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Á alþjóðadegi fatlaðs fólks er hægt að ítreka að við eigum að fara eftir algildri hönnun. Við eigum að sjá til þess þegar byggt er að byggingar séu ekki teknar í notkun nema allir geti haft aðgang að þeim. Ég vona heitt og innilega að ákvæði þessa nefndarálits skili sér í eitt skipti fyrir öll, þ.e. að byggingar verði ekki teknar í notkun án þess að allir hafi aðgang að þeim; að ekki verði gefinn afsláttur, að menn hugsi sér að gera úttekt tveimur til þremur árum seinna og ekki verði t.d. gengið almennilega frá lyftum og öðru slíku. Ég vona heitt og innilega að þessi skilaboð komi skýrt fram, þ.e. að farið verði að lögum þannig að allir geti haft aðgang að byggingum.