staðfesting samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu árið 2021 .
Virðulegi forseti. Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu árið 2021 sem gengið var frá til bráðabirgða með bréfaskiptum á milli stjórnvalda ríkjanna fyrr á þessu ári.
Samningur þessi kveður á um heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvor annars á árinu 2021. Færeyingar geta samkvæmt samningnum veitt allt að 30.000 tonn af loðnu eftir að 500.000 tonna heildarkvóta er náð. Ísland fær heimild til að veiða allt að 1.300 lestir af makríl á ári innan fiskveiðilögsögu Færeyja. Þjóðirnar samþykktu að hefja vinnu við að breyta fyrirkomulagi þessara samningaviðræðna með það að markmiði að gerður yrði rammasamningur til lengri tíma. Hægt yrði að breyta ýmsum atriðum, svo sem kvótum og aðgangi miðað við aðstæður á hverjum tíma.
Samningurinn tók gildi til bráðabirgða 23. nóvember 2020 og mun öðlast endanlegt gildi þegar stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hefur verið fullnægt.
Áður en samningur þessi var gerður var á grundvelli eldri samnings landanna frá 1976 um heimildir Færeyinga til veiða í lögsögu Íslands ákveðið að færeyskum skipum væri heimilt að veiða 5.600 lestir af botnfiski við Ísland á árunum 2019 og 2020. Heildarafli þorsks verður þó ekki meiri en 2.400 lestir, heildarafli keilu ekki meiri en 400 lestir og engar veiðar eru heimilar á lúðu og grálúðu. Er það óbreytt magn frá fyrri samningi að undanskildu því að magn keilu minnkar úr 650 lestum vegna bágs ástands stofnsins.
Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.