fátækt.
Virðulegur forseti. Atvinnuleysið mælist nú um 11% og sífellt fjölgar í hópi þeirra sem hafa aðeins grunnatvinnuleysisbætur eða fjárhagsaðstoð sér til framfærslu. Ásókn í matarúthlutanir hefur stóraukist og ljóst er að færri komast að en vilja. Nú líður að jólum. Þá er fjöldi fjölskyldna sem treystir á matarúthlutanir til að geta haldið heilög jól. Ekkert stendur þó til að ríkið muni auka stuðning við almannasamtök sem annast matarúthlutanir. Í vor voru samþykktar í fjáraukalögum einstaklingsaðgerðir upp á 25 millj. kr. til tíu hjálparsamtaka, sem fengu 2,7 milljónir hver. En ekki stendur til að gera neinar sambærilegar ráðstafanir nú fyrir jól.
Í dag ætlar hæstv. menntamálaráðherra að mæla fyrir frumvarpi sem snýst um að ríkið skuli greiða hátt í hálfan milljarð til einkarekinna fjölmiðla. Margir þeirra hafa verið keyptir af auðmönnum sem nota þá til að hafa áhrif á umræðuna og standa í pólitískum áróðri sem styður við hagsmuni auðugra eigenda þeirra. Þeir hafa keypt þessa miðla, ekki beint í gróðaskyni heldur til að kaupa sér áhrif. Útlit er fyrir að þessi nálega hálfi milljarður árlega verði fastur liður á fjárlögum um komandi framtíð. Nú er ekki víst að hæstv. forsætisráðherra verði viðstödd hér síðar í dag þegar umræðan um fjölmiðlafrumvarpið fer fram svo ég kem hér með spurningar. Hver einasta króna sem við setjum í stuðning við okkar fátækustu bræður og systur skilar samfélaginu margföldun ábata. Telur ráðherra það virkilega verjandi að forgangsraða fjármunum ríkisins á þann hátt að styrkja einkarekna fjölmiðla fremur en að styrkja matarúthlutanir? Ég ætla að biðja hæstv. ráðherra að vera ekki að þylja upp hinar ýmsu aðgerðir ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu í svari sínu, enda er augljóst að þær dugðu ekki til og að þörf er á frekari stuðningi við fátækt fólk og það strax.