151. löggjafarþing — 34. fundur,  9. des. 2020.

rannsókn og saksókn í skattalagabrotum .

373. mál
[16:36]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég vildi bara koma hingað upp til að árétta að ég hafði áhyggjur í mínum þingflokki af þessari sameiningu, og vildi bara ræða það aðeins við ráðherra. Þetta var svo sem skýr framsaga. Ég hef talað fyrir því í gegnum tíðina að auka fjármuni til skattrannsóknarstjóra, gera embættið enn styrkara en það er í dag. Þetta er komið undir einn hatt þar sem skattstjórinn verður yfir þessu. Sannarlega er hér tekið fram að viðkomandi eigi að vera sjálfstætt starfandi deild innan skattsins og það svo sem vel rakið og ég geri mér alveg grein fyrir því að ýmis hagræðing muni nást fram með slíkri sameiningu, svona praktískt. Þegar aðilar flytja undir sama þak þá getur eðli máls samkvæmt margt verið samnýtt. En ég hef áhyggjur, og ætla ekki að fara dult með það, af því að við þurfum að auka frekar í varðandi skattrannsóknir. Sannarlega, eins og ráðherra sagði, á ekki að draga úr fjármunum núna en hagræðing gæti komið fram síðar. Fjárveitingavaldið verður hjá ríkisskattstjóra, ekki hjá skattrannsóknarstjóra. Mig langar að ræða það við hæstv. ráðherra að við sjáum það að fjárveitingin innan embættisins verði ekki til þess að það halli á skattrannsóknarstjóra þegar árin líða, af því að ég held að það þurfi frekar að auka í það en ekki.