151. löggjafarþing — 34. fundur,  9. des. 2020.

rannsókn og saksókn í skattalagabrotum .

373. mál
[16:38]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég tek bara undir það, það er afskaplega mikilvægt að skattrannsóknir séu nægjanlega vel fjármagnaðar. Við höfum verið að horfa til þess á undanförnum árum að fjármagna sérstök átaksverkefni af ýmsum toga sérstaklega og eftir því sem kallað hefur verið eftir því, bæði frá ríkisskattstjóra og eins skattrannsóknarstjóra. Það má vel rekja þá sögu að í fjárlögum höfum við verið jafnt og þétt að auka fjárveitingar í málaflokkinn. Við skulum ekki gleyma því að hluti af því að fjármagna þennan málaflokk vel er að búa vel að þessari starfsemi og nú fyrir skemmstu var útboð um nýtt húsnæði fyrir Skattinn sem á að tryggja að sú starfsemi fari í fullkomið nýtt leiguhúsnæði og öll starfsemin færist inn í eina og sömu starfsstöðina hérna á höfuðborgarsvæðinu, sem hefur verið dálítið dreifð. Það er mikilvægt sömuleiðis að menn fjármagni og tryggi að upplýsingatækniinnviðir séu vel fjármagnaðir og að með því sé rannsóknargetan til staðar. Skattrannsóknir fara m.a. fram með því að rannsaka gögn, með því að nýta gervigreind þegar það á við, og allt eru þetta liðir í því að fjármagna þetta vel. Þetta felst ekki eingöngu í því að vera með nægjanlega marga einstaklinga heldur líka í aðbúnaðinum, tækjakostinum og öllu öðru sem styður við starfsemina. Um það held ég að ætti ekki að vera neinn ágreiningur (Forseti hringir.) en ég tel að sú leið sem hér hefur verið valin sé líkleg til að ná þeim markmiðum sem þingmaðurinn nefnir.