151. löggjafarþing — 36. fundur,  11. des. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[13:12]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég rakti hér í umræðunni í gær að halli þess árs sem nú er að líða getur orðið um 270 milljarðar. Fjárlögin sem við greiðum atkvæði um nú verða með 320 milljarða kr. halla. Við erum að tefla mjög djarft og við erum að tefla mjög tæpt. Þess vegna skiptir viðspyrnan svo miklu máli og það er viðspyrnan sem er undirbúin í þessum fjárlögum. Þetta er viðspyrna sem er byggð á sterkri stöð ríkissjóðs. Þetta er ríkisstjórn sem mynduð var í upphafi kjörtímabils til að efla innviði, efla velferðarkerfi og heilbrigðiskerfi. Hún stendur vörð um það. Sólin fer að hækka á lofti. Það er ekki bara ríkisstjórninni að þakka en hún hefur sannarlega hjálpað til. [Hlátur í þingsal.]