fjárlög 2021.
Herra forseti. Það er nú þegar ljóst í upphafi þessarar umræðu að orðið viðspyrna er orð dagsins. Það er auðvitað ekkert sérkennilegt vegna þess að við vitum að þessu linnir innan skamms og þá þurfum við að hafa kraft til að komast á eðlilegt ról. Viðspyrnan sem ríkisstjórnin býður upp á gæti dugað einhverjum en ekki öllum og ekki þeim sem mest þurfa á henni að halda. Það er alveg rétt að viðnámsþróttur og fyrirsjáanleiki skiptir atvinnulífið og fyrirtæki miklu en ekki má gleyma því að fjölskyldur, heimili og börn þurfa líka á fyrirsjáanleika að halda. Þau þurfa líka að hafa viðspyrnu. Ég óttast að ef ekki verður betur gert í þessum fjárlögum muni ójöfnuður aukast og viðspyrna veikustu hópa okkar verða lítil sem engin og það mun skapa óeiningu og tjón í þessu samfélagi.