fjárlög 2021.
Herra forseti. Við erum að ræða um tölulið 2 í breytingartillögu sem stafar frá Viðreisn. Hún gengur út á það að í eitt ár verði veittur helmingsafsláttur af tryggingagjaldi vegna þeirra starfsmanna sem fyrirtæki ráða til sín af atvinnuleysisskrá. Ekki þarf að fjölyrða um það hversu alvarlegt atvinnuástandið er, hversu ömurlegt atvinnuleysið er, hvað það er áríðandi að sem flestir komist til vinnu sem fyrst. Þetta mun leiða til þess, þetta mun gera fyrirtækjunum auðveldara að ráða til sín fólk, ráða til sín fólk sem þarf svo sannarlega mest á því að halda.