151. löggjafarþing — 36. fundur,  11. des. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[13:44]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á því að hér er meiri hluti fjárlaganefndar að leggja til breytingartillögur í erfiðu árferði. Við skulum hafa það alveg á hreinu að við erum að eyða um efni fram út af þeim aðstæðum sem hér eru uppi. Sem betur fer byggir ríkissjóður á traustum grunni vegna þess að greiddar hafa verið niður skuldir þegar vel hefur árað. Það er samt sem áður ekki sjálfsagt og eðlilegt að auka útgjöld á öllum sviðum. Það er mjög langur vegur frá.

Við erum hér að ráða bót á því að við höfum verið eina þjóðin af okkar bandalagsríkjum sem hefur ekki tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi gegn ógn sem er ekki framtíðarógn heldur núverandi ógn, og það er þegar kemur að netöryggismálum. Ég vil nota tækifærið, virðulegi forseti, og þakka sérstaklega forystu og meiri hluta hv. fjárlaganefndar fyrir að hafa sett sig vel inn í þessi mál og komið með mjög góðar breytingartillögur, bæði hvað varðar (Forseti hringir.) þessi öryggismál og önnur hagsmunamál okkar Íslendinga.

Ég mun að sjálfsögðu greiða atkvæði með þessari tillögu en ég tek eftir því að það eru ekki allir þingmenn sem gera það.