151. löggjafarþing — 36. fundur,  11. des. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[14:11]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ríkisstjórnin beitti sér fyrir því að gefa landsmönnum svokallaða ferðagjöf upp að 5.000 kr. og stendur til að framlengja hana fram á sumar. Þessi tillaga Viðreisnar gengur út á það að bæta 15.000 kr. við þessa ágætu gjöf, nýta það kerfi sem upp hefur verið sett, útvíkka gjöfina þannig að hún taki líka til lista- og menningarstarfsemi og taki líka til fólks frá 12 ára aldri. Í senn mun þetta stórauka umsvif í umræddum greinum sem hafa orðið fyrir miklum búsifjum og síðast en ekki síst mun þetta koma sér afar vel fyrir þá sérstaklega sem hafa orðið fyrir miklum tekjumissi. Með þessu móti geta fjölskyldur gert sér glaðan dag og ferðast um landið.