fjárlög 2021.
Herra forseti. Í ábyrgu leiðinni og þingmáli okkar í Samfylkingunni um græna atvinnubyltingu, sem liggur nú fyrir þinginu, gerum við ráð fyrir 60% samdrætti og látum fylgja markvissar aðgerðir um hvernig eigi að efna það. Það liggur fyrir að ný áform hæstv. forsætisráðherra um 55% samdrátt eru ófjármögnuð og einungis 0,1% af aukningu á landsframleiðslu fer til umhverfismála. Við viljum t.d. að stofnaður verði grænn fjárfestingarsjóður í eigu hins opinbera sem styðji loftslagsvæna atvinnuuppbyggingu og grænan hátækniiðnað. Ríkið leggi sjóðnum til 5 milljarða kr. í hlutafé. Sjóðurinn leiti eftir samstarfi við einkafjárfesta, taki mið af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og stefnu Vísinda- og tækniráðs í allri starfsemi sinni og ýti undir góða stjórnarhætti í félögum sem hann fjárfestir í.