151. löggjafarþing — 36. fundur,  11. des. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[14:20]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ef ég skil þetta rétt erum við að greiða atkvæði um sérstakan stuðning við minkabændur upp á 80 milljónir kr. á forsendum umhverfismála. Ég verð að segja að mér finnst þetta mjög sérkennileg ráðstöfun, svo ég orði það nú ekki sterkar, og ég get satt að segja ekki stutt þessa aðgerð. Ég mun því segja nei við þessum lið í tillögunni.